Feb 3, 2005
þetta er einn af þessum dögum.. ég þoli ekki hvernig ég lít út.. en samt er ég ánægð.. því núna er ég föst á því að ná mér niður í þyngdinni.. fór á góða æfingu áðan.. body pump +35 mín brennsla eftir tímann.. ég er búin að setja mér nokkrar reglur í mataræði sem ég ætla að fylgja.. ætla ætla ælta.. og ég veit að ég get það alveg.. ekkert mál :P svo ætla ég að sleppa því að hafa "nammidaga" þeir koma mér bara úr jafnvægi matarlega séð..miklu auðveldara að sleppa óhollustunni alveg heldur en að hafa hana einusinni í viku... :D en annars er lítið að frétta af mér.. alltof mikið að gera í skólanum.. eins og alltaf :D jæja.. er farin að taka til :P
love Dugleg ;)
Posted at 07:06 am by dugleg
Permalink
Jan 18, 2005
jæja.. núna ætla ég að byrja aftur að tjá mig á þessu blessaða átaksbloggi mínu :D
Ég er ekki búin að vera að æfa mikið um jólin og hátíðirnar en það er nú bara afþví stöðin sem ég er að æfa á var lokuð yfir hátíðirnar.. sem mér finnst nú frekar fúlt.. En núna er allt komið á fullt... mætti 4 x í síðustu viku og er búin að mæta tvisvar í þessari viku.. sem er ágætt þar sem það er nú bara þriðjudagur :D Mataræðið er allt að koma eftir jólin.. missti mig smá í jólamatnum ;) en jólin eru nú bara einusinni á ári.. :P
Kveðja Duglega stelpan
Posted at 04:26 am by dugleg
Permalink
Nov 24, 2004
vááá hvað er búið að vera mikið að gera hjá mér í skólanum þessa dagana..
Ég er í verkfræði og þetta er bara dauðinn.. lærði í gær frá 8 til hálf eitt.. fékk pössun fyrir barnið eftir leikskóla og allt... úff.. tók mér samt eina pásu og fór á æfingu.. Tók bak og tvíhöfða og 35 mín brennslu.. búin að fara reglulega að æfa og mataræðið er allt að koma :D En núna snýst einhvernvegin allt um skólann og að ná prófunum..
Kveðja Dugleg
Posted at 04:08 am by dugleg
Permalink
Nov 18, 2004
skyr.is drykkurinn endalaust góður.. mmm
Fór á massíva æfingu áðan! tók fætur og svo hálftíma brennslu eftir lyftingarnar.
En ég fór að spá í einu.. með fótapressuna eða leg press.. það þyngsta sem maður getur tekið í henni er 260 kg og ég var að taka í dag alveg 210 kg 20x og þrjú sett.. þyngi líklegast næst því ég var alls ekki búin eftir þetta... og tek vanalega bara 15x.. er þetta ekki frekar mikil þyngd??
Annars er ég búin að vera ágætlega dugleg með mataræðið en ætla samt að reyna að vera ennþá duglegri :P mér finnst bara svo gott að borða.. en mér finnst hinsvegar ennþá skemmtilegra að grennast :D þannig ég næ alveg að hemla mig.. ;)
Kveðja Dugleg
Posted at 06:47 am by dugleg
Permalink
Nov 16, 2004
Jæja.. ég er nú ekki eins dugleg að blogga og æfa... ætla að reyna að vera aðeins duglegri við það núna...
Ég æfði ekkert um helgina en náði einni góðri í dag.. og stefni á jafnvel tvær á morgun... búin að vera með svona ágætt mataræði... tók einn nammidag.. mmm hvað það var gott! :D
Fór á fitness keppnina á laugardaginn... og vááá hvað ég væri til í að vera svona!! en þetta fólk sem er að taka þátt er ekki svona nema í stuttan tíma og hefur rosalega mikið fyrir því... fer örugglega ekki vel með líkamann... hmm...
Kveðja Dugleg!
Posted at 09:14 am by dugleg
Permalink
Nov 10, 2004
Jájá! Búin að taka tvær æfingar í dag! Fyrri æfingin var bara brennsla.. 40 mínútur og nóg um svitann.. úff.. svo var ég að koma af síðari þar sem ég lyfti... tók bak og tvíhöfða :D var bara frekar dugleg held ég.. Mataræðið búið að vera ágætt.. weetabix, speltbrauð með grænmeti og kotasælu og svo túnfiskur :D gaman gaman.. Mér finnst ég samt verð að komast á vigt bráðum.. hef ekki hugmynd um hvað ég er þung... æjæj...
takk fyrir peppið stelpur ;) ótrúlega kvetjandi að fá svona comment :*
Kveðja Dugleg :P
Posted at 05:53 am by dugleg
Permalink
Nov 9, 2004
ekkert óhollt og svaka dugleg :D
já.. ég fór á aðra æfingu.. náði 40 mín. brennslu á henni... :D
fékk mér svo létt súrmjólk með serjósi útá nennti bara ekki að elda í dag.. Hef þá bara kjúllan í kvöldmat á morgun :P
Kveðja Duglega stelpan
Posted at 03:02 pm by dugleg
Permalink
Jæja krúsídúllurnar mínar!!!
Mataræðið í gær var..
bara rosa gott... weetabix, skyr, fiskur, grænmeti og próteindrykkur... minnir mig.. :P og í fékk ég mér weetabix í morgunmat,skyr í kaffinu, túnfisk og soðið grænmeti í hádeginu... og ætli ég fái mér ekki skyr í seinna kaffinu og kjúklingabringu í kvöldmat :P
Fór á brennslu æfingu áðan... tók samt bara 30 mín í brennslu :/ en ég fer á aðra um 3:30 og ætla að brenna aftur þá.. :P JEIJ! Elska að vera komin af stað aftur... og vissuði.. að túnfiskur í dós.. er bara ekkert svo vondur.. :O þarf að fara að finna út hvernig ég set broskalla hérna... :P
Kveðja Duglega stelpan
Posted at 04:45 am by dugleg
Permalink
Nov 8, 2004
Loksins búin að djamma.. haha
Já vitiði... það var bara rosalega gaman hjá mér á djamminu á laugardaginn :P ... dansaði reyndar ekki mikið... og keypti mér fylleríismat á leiðinni heim :(.... en tók góða brennslu æfingu í þynnkunni á laugardaginn :P alltaf gaman að hlaupa af sér þynnkuna.. bjakk.. Annars fór ég á rosa góða æfingu áðan og ég er búin að vera bara frekar dugleg með mataræðið. Ég var að fá stóran dúnk af mysupróteindufti áðan. Sé ekki fram á annað en að ég verði komin í þrusuform fyrir sumarið :D Er byrjuð að taka meiri brennslu en ég gerði og minnka lyftingar.. var orðin sterkari en meðal karlmaður.. haha.. ekki sniðugt :P
Dugleg
Posted at 10:37 am by dugleg
Permalink
Nov 5, 2004
Jæja.. þá er fyrsti dagurinn byrjaður ! :P
Fékk mér serjós í morgunmat (finnst reyndar betra að fá mér weetabix eða hafragraut.. geri það bara næst.. það er líka hollara og ég er lengur södd af því) fékk mér svo einhverja spínatböku í kaffinu og tók svo 40 mín brennslu áðan.. Er reyndar að fara á smá djamm í kvöld.. en þá er það bara light bjór og dansa hann bara af mér í kvöld ! ;) ætlaað fá mér boozt í hádeginu, banana í kaffinu og kjúklingabringu í kvöldmat... gott plan... svo er bara að fara eftir því ;)
Kveðja Dugleg :D
Posted at 03:16 am by dugleg
Permalink